Til baka

    Fyrir einstaklinga

    Námskeið og fyrirlestrar um gervigreind

    Læra, skapa og auka framleiðni með gervigreind

    Fyrirlestrar

    Grípandi kynningar sem vekja áhuga

    Hagnýting gervigreindar

    Hvernig má hagnýta gervigreind í starfi og leik

    Góð prompt

    Notaðu réttar aðferðir til að fá gervigreindina til að gera það sem þig vantar.

    Myndir og kvikmyndir

    Breyttu og skapaðu myndir, teikningar og kvikmyndir.

    Námskeið

    Aðgengileg og skemmtileg námskeið um hagnýta notkun gervigreindar fyrir einstaklinga og starfsmenn fyrirtækja. Námskeiðið er kennt í tveimur lotum, í þrjá tíma í senn og þátttakendur fá með sér heimaverkefni til þess að koma enn betur undirbúnir fyrir kennslu og leiðbeiningar á öðrum degi.

    Námskeiðið nýtist bæði þeim sem hafa litla þekkingu eða reynslu í notkun gervigreindar sem og þeim sem eru þegar byrjaðir að fikta en vilja ná lengra og taka notkunina á næsta stig.

    Á námskeiðinu er farið í notkun algengustu gervigreindartólanna með áherslu á ChatGPT frá OpenAI, Gemini frá Google og Grok frá X. Einnig eru sýnd dæmi um notkun á app-útgáfum þessara tóla í síma.

    Fjalar Sigurðarson að kenna

    Hafðu samband

    Ertu tilbúin(n) að hefja ferðina með gervigreind?