AI-ráðgjöf fyrir
    fyrirtæki og stofnanir

    Árangur strax

    Reynslan sýnir að fyrirtæki og starfsmenn hafa ekki mikinn áhuga á fræðilegum vangaveltum um gervigreind. Fólk vill sjá hana virka.

    Skjót og hagnýt stefnumótun í upphafi tryggir öryggi við innleiðingu gervigreindar. Viðkvæmar upplýsingar eru varðveittar og persónuvernd tryggð. Starfsfólk veit hvað má og hvað ekki má.

    Með því að klára eitt verkefni og halda svo áfram í það næsta, skapast traust. Þegar starfsfólk sér hvernig gervigreindin léttir undir í daglegu starfi, kviknar áhuginn og hugmyndaflugið fer af stað.

    Fáðu ráðgjöf sem snýst um framkvæmdir, ekki fundahöld.

    1

    Upphaf

    Höldum ekki langdregna fundi en mótum skýr gervigreindarboðorð sem allir fara eftir.

    2

    Umbætur

    Finnum flöskuhálsa sem skipta máli og hægt er að leysa. Aukum skilvirkni með því að gera gömlu hlutina betur.

    3

    Tækifæri

    Horfum fram á við og finnum tækifærin sem gervigreindin gefur til að gera nýja og spennandi hluti.

    Tilbúinn að byrja?

    Hafðu samband til að ræða hvernig ég get hjálpað fyrirtækinu þínu.

    Bóka fund